Gagnaglímufélag Íslands
Hakkaraskóli GGFÍ
Æfingarvettvangur fyrir netöryggi, linux og verkefnamiðað nám.
Velkomin
Þessi æfingarvettvangur er ætlaður sem kynning á netöryggi og er rekinn af Gagnaglímufélagi Íslands (GGFÍ). Markmið GGFÍ er að efla netöryggismenningu á Íslandi og rekur félagið einnig Netöryggiskeppni Íslands, Gagnaglímuna, og sér um þátttöku Íslands í Netöryggiskeppni Evrópu (ECSC) í umboði Innviðaráðuneytisins.
Þessi vettvangur, Hakkaraskólinn, er hugsaður sem kynning fyrir byrjendur. Boðið er upp á lesefni og kennsluefni, auk verkefna þar sem hægt er að láta reyna á þekkinguna. Til að fá aðgang að verkefnunum þá skráir þú þig inn í þetta kerfi.
Landskeppni Gagnaglímunnar
Hakkaraskólinn er einnig forval fyrir Landskeppni Gagnaglímunnar, en þau ungmenni (25 ára og yngri) sem ná 1.000 stigum í Hakkaraskólanum munu fá boð um þátttöku í öllum Landskeppnum Gagnaglímunnar fram að 26. aldursári.
Til að fá boð um þátttöku í Landskeppninni er mikilvægt að skrá fæðingarár í þessu kerfi, en það er hægt að gera þegar reikningur er stofnaður en einnig er hægt að bæta þeim upplýsingum við eftir skráningu.
Nánari upplýsingar eru á gagnagliman.is.
Hverjir mega taka þátt?
Allir mega skrá sig og spreyta sig á verkefnunum. Boð um Landskeppni Gagnaglímunnar eiga þó aðeins við þátttakendur sem uppfylla aldursskilyrði keppninnar.
Í þróun
Vettvangurinn er í stöðugri þróun. Meira lesefni og fleiri verkefni munu bætast við með tímanum.
Ef þú lendir í vandræðum, hefur ábendingar eða vilt koma með tillögur má hafa samband á Discord eða með tölvupósti á ggfi@ggfi.is.
Stuðningur
Þróun Hakkaraskólans var fjármögnuð að hluta af Evrópusambandinu með styrk sem veittur var í gegnum Eyvöru – hæfnisetur netöryggis á Íslandi (NCC-IS).